Sendi inn 4 umsóknir í
Fiskiræktarsjóð - ein þeirrra var vegna fiskiræktar í Glerá. Það á sér forsögu; Í lok árs 2011, óskaði SVAK eftir viðræðum við Akureyrarbæ vegna Glerár. Hugmyndin var að SVAK tæki við umsjá árinnar og ræktaði upp í henni fiskistofn - með einum eða öðrum hætti. Vel var tekið í erindið en ekki afgreitt og er enn í bið. Jafnframt var sótt var leyfi
Fiskistofu til fiskiræktar í ánni og fengust þau leyfi, þó með fyrirvara um að veiðifélag Glerár staðfesti áætlunina. Og nú stendur á því - Akureyrarbær og Norðurorka eiga Glerá og þyrftu að stofna veiðifélag sem staðfest gæti fyrirkomulagið.