Vorboðar veiðimanna eru margir - einn slíkur eru fréttir af stórurriðadrápi í Þingvallavatni ásamt stóryrtum og misvel-rökstuddum upphrópunum með eða á móti. Þarna er nú samt á ferðinni klassískt dæmi um nytjar á sameiginlegri en takmarkaðri auðlind. Í raun skólabókardæmi sem fjallað er um bæði útfrá auðlindahagfræði og leikjafræði. Í stuttu máli segir sagan okkur að ef nytjum á slíkum auðlindum er ekki stýrt, þá verður gengið að þeim þar til ekkert er eftir. Með öðrum orðum - græðgi mannsins klárar auðlindina. Aðeins er hægt að koma í veg fyrir það með því að setja á sameiginlega stýringu á nýtingu auðlindarinnar, byggða á bestu fáanlegu upplýsingum.
Showing posts with label urriði. Show all posts
Showing posts with label urriði. Show all posts
Apr 23, 2014
Óstjórn stangveiða
Vorboðar veiðimanna eru margir - einn slíkur eru fréttir af stórurriðadrápi í Þingvallavatni ásamt stóryrtum og misvel-rökstuddum upphrópunum með eða á móti. Þarna er nú samt á ferðinni klassískt dæmi um nytjar á sameiginlegri en takmarkaðri auðlind. Í raun skólabókardæmi sem fjallað er um bæði útfrá auðlindahagfræði og leikjafræði. Í stuttu máli segir sagan okkur að ef nytjum á slíkum auðlindum er ekki stýrt, þá verður gengið að þeim þar til ekkert er eftir. Með öðrum orðum - græðgi mannsins klárar auðlindina. Aðeins er hægt að koma í veg fyrir það með því að setja á sameiginlega stýringu á nýtingu auðlindarinnar, byggða á bestu fáanlegu upplýsingum.
Dec 6, 2013
Konfektkassi íslenskra veiðibókmennta?
Fékk það skemmtilega verkefni að lesa veiðibók og spjalla um hana í sjónvarpi. Um var að ræða tvíbindið: "Stangveiðar á Íslandi og Íslensk vatnabók" eftir Sölva Björn Sigurðarson. Þarna er á ferðinni virkilega metnaðarfullt verk sem m.a. var tilnefnt til íslensku bókmenntaverðlaunanna 2013. Bækurnar eru skyldulesning og -eign allra áhugamanna um stangveiðar, ferskvatnsfiska og menningu því tengda. Skyldulesning af því um er að ræða mikinn og áhugaverðan fróðleik og skyldueign því að verðlauna ber svona útgáfu með því að kaupa hana.
Hér neðar má sjá álit mitt á bókunum.
Mar 18, 2013
Veiðitölur fyrir nerði...gagnvirk grafík
Síðustu árin hefur rafræn veiðibók verið í þróun hjá okkur Ingvari Karli, í samstarfi við SVAK, Flúðir og veiðifélög Hörgár og Svarfaðardalsár. Ég held verkefnið hafi gengið alveg ágætlega og flestir séu nokkuð sáttir. Nú er komið að því að okkur langar að bjóða uppá gagnvirka grafíska framsetningu gagnanna - hér neðar má sjá eitt dæmi um hvernig slíkt gæti litið út. Það væri gaman að frétta af því hvernig fólki gengur að fikta í þessu - og/eða fá hugmyndir um fleiri fídusa sem menn vilja sjá.
Endilega sendið mér línu eða setjið skilaboð hér fyrir neðan.
Endilega sendið mér línu eða setjið skilaboð hér fyrir neðan.
Feb 28, 2013
Vísindaþing landbúnaðarins 2013
13:00 Vatnavistkerfi í hlýnandi loftslagi — Jón S. Ólafsson, Gísli M. Gíslason, ofl..
13:20 Eru breytingar á stofnstærðum bleikju og urriða af völdum loftslagsbreytinga — Guðni Guðbergsson
13:40 Sjóbleikja á vatnasviði Hvítár í Borgarfirði – Stofnstærð og göngur — Ingi Rúnar og Sigurður Már
14:00 Nýjar fisktegundir í ferskvatnsfánu Íslands — Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson
Hér má svo lesa nánar um þingið
Ég hef hinsvegar aldrei skilið afhverju ferskvatnsfiskar eru með landbúnaði í flokkunarfræði stofnana. Hefði haldið að ferskvatnsfiskar ættu meira sameiginlegt með frændum sínum í sjó en trjám og rollum....! En sú vitleysa á sér langa sögu sem smátt og smátt er undið ofan af.
Dec 11, 2012
Innrás urriðans
Eyjafjarðará blómstrar sem sjóbirtingsá enda veiddust 620 urriðar eða sjóbirtingar þar í sumar. Sá stærsti var 6,5 kg og 82 cm , fjölmargir voru á bilinu 2-4 kg. Þetta er langbesta urriðaveiði í skráðri sögu árinnar.
Hinsvegar fækkar bleikjunni enn og veiddust innan við 500 bleikjur í sumar.
Hér neðar setti ég nokkur gröf með veiðitölum sumarsins - athugið að um bráðabirgðatölur er að ræða.
Myndirnar tala...
Hinsvegar fækkar bleikjunni enn og veiddust innan við 500 bleikjur í sumar.
Hér neðar setti ég nokkur gröf með veiðitölum sumarsins - athugið að um bráðabirgðatölur er að ræða.
Myndirnar tala...
Aug 25, 2012
Sælir eru silungsveiðimenn...
![]() |
| 8 pund 66cm, tòk à maðk rètt fyrir ofan svæðamót à 1 og 2 í Hörgá veiðimaður er Haukur Már Hergeirsson |
Ég er nógu mikill veiðinörd til þess að taka saman silungsveiðitölur úr nærumhverfi mínu, endrum og eins. Þarna eru á ferðinni mun jákvæðari tölur en heyrast úr laxaheiminum....
Jun 28, 2012
2012_7 Jurassic Lake
Í heilt ár hef ég hlustað á öfgaveiðisögur félaganna af Jurassic Lake. Vænar bleikjur í massavís, ofurtökuglaðar, kryddað með risaurriðum. Hljómar frekar draumkennt - en þegar ég fór að sjá myndir af veiðinni fór ég að leggja við hlustir. Renndi svo austur í liðinni viku og kíkkaði á málið. Jurrassic Lake er Skjálftavatn í Kelduhverfi sem Litla rennur úr. Vatnið er á gosbeltinu á miðjum atlantshafshryggnum, sama beltið og t.d. Þingvallavatn liggur á. Vatnið myndaðist í sjálftahrinu á 8. áratugnum við landsig, en var uppgræðslusandur landgræðslunnar.
Subscribe to:
Posts (Atom)
