Vatnsmagn í veiðiám er ein af stóru breytunum í veiðinni. Það er ýmist of eða van og breytileiki milli ára getur verið ótrúlega mikill. Snjómagn í upphafi sumars er forðabúrið og ræður miklu um framvinduna. Hitastig og úrkoma ráða einnig miklu - enda bráðnar snjór víst ekki í kulda og rigning hefur yfirleitt bein áhrif á vatnsmagn.
Ekki man ég hvernig vatnabúskapurinn 2014 var sv-lands en hér nyrðra var leysing fram í ágúst. Það bitnaði á veiðinni.
Til að spá fyrir um vatnasumarið 2015 náði ég mér í kort sem sýnir mismun á snjómagni í byrjun maí á milli áranna 2015 og 2014.