Enn streyma inn umsóknir fyrir sjókvíeldi, fyrirtækin virðast ætla að tryggja sér svæði, hvað sem svo verður. Baráttan gegn sjókvíaeldi á norskum laxi verður því mikilvægari eftir því sem fyrirhugað umfang eykst. Slæm reynsla annarra þjóða af sjókvíeldinu á laxi er staðreynd. Opinberum aðilum ber að hafa þá reynslu í huga þegar umsóknir eru metnar.
Tók saman nokkra punkta um sennilega áhrif af 8.000 tonna framleiðslustöð í Eyjfirði og hélt nokkur erindi fyrir smábátasjómenn og stangveiðifólk á síðasta ári. Hér er lesningin, ásamt heimildum, og hér fyrir neðan er svo myndband um samantektina: