Nov 26, 2014

Áttu bleikju í frystinum?


Kæri veiðimaður
Áttu nokkuð bleikju í frystinum?  
Ef svo er þá langar mig að biðja þig um smá aðstoð.

Þannig er að til rannsókna vantar mig talsvert af bleikjusýnum, helst bleikjuhausum. 
Ef þú átt bleikju og ert til í að aðstoða mig, hafðu þá endilega samband, ég mæti á svæðið og tek sýnið.  Það þarf ekki að afþíða fiskinn - við tökum hann bara úr frystinum í fimm mínútur og ég tek sýnið.
Ég get ekkert greitt fyrir aðstoðina, framlag til vísinda og einlægt þakklæti verða að duga:)

Sýnin sem ég tek eru tvennskonar:
1) Bleikjuhausar, þá þurfa að vera til staðar upplýsingar um veiðiá og möguleiki á að lengdarmæla fiskinn.  (Ekki væri verra að hafa upplýsingar um veiðidag og kyn).  Kvarnir úr bleikjuhausunum eru svo notaðar til aldursgreiningar sem yfirfæra má á lengdarflokka, sem aftur má nota til að setja upp stofnstærðarpælingu í VPA.  
2) Örlítið sýni úr fiskinum, helst úr vöðva eða úr hausnum.  Upplýsingar um veiðiá verða að liggja fyrir.   Sýnin eru notuð í DNA-greiningu til að kortleggja skyldleika sjóbleikjustofna en það er rannsókn á vegum Líf- og umhverfisvísindadeildar HÍ. 


Hér má svo lesa meira um þessar og fyrri rannsóknir mínar.

Elli Steinar    | 696-5464 | Skype: ellisteinar ellisteinar(at)gmail.com