Nálgun okkar á stangveiðar breytist hratt, sem betur fer, því stöðugt eykst veiðiálagið. Hófsöm nýting, fiskur á grillið en ekki í frystinn og veiða&sleppa þar sem það sem við er sennilega það koma skal.
Hér er fínt myndband frá Kanada um hvernig framkvæma á veiða&sleppa.
Apr 22, 2013
Hvalvatns-Fjarðará
SVAK og félögin eru með árkynningu í kvöld (mánudagkvöld 22.04.2013) -
Hvalvatns-Fjarðará verður í brennildeplinum. Ég hef komið þarna - það er alger upplifun. Áin er klassísk jökulskotin dragá, þar sem jökullitar getur gætt allt fram á haust. Veiðin þarna virðist vera ýmist í ökkla eða eyra. Það er sko alveg þess virði að skella sér einn túr þarna úteftir. Hér neðar set ég inn veiðitölur, kynningarmyndband og nokkrar myndir.

Apr 8, 2013
Hofsá í Lýtó
Í kvöld ætlar Ármann að spjalla um Hofsá í Lýtó á vetrarstarfi veiðimanna. SVAK tók ánna á leigu 2008 og á hún orðið marga aðdáendur, enda alger perla í afdal. Breytileiki í veiðivon og aðstæðum til veiða háir ánni hinsvegar, því stundum gerir jökulskotið úr Fossánni svæðið óveiðandi. Og veiðin er eftir þvi, ýmist í ökkla eða eyra...
Á sínum tíma eyddi SVAK nokkru púðri í að gera sumarhús við Litluhlíð að notalegum gistikosti, steyptur var upp heitur pottur, smiðaður pallur, ofl. Síðan þá hafa Marta og Addi snurfusað svæðið í kring. Nú er þetta orðið virkilega notalegt að koma þarna - eiginlega alger fjölskylduparadís. Fór þarna í fyrra með familjunna - það var dásamalegt og nutu sín allir.

Subscribe to:
Posts (Atom)