Vísindaþing landbúnaðarins, sem áður hét Fræðaþing landbúnaðarins, verður haldið þann 6. mars nk. Jafnan eru nokkrir áhugaverðir fyrirlestrar þar um ferskvatnsfiska. Nú verða þar nokkrir undir liðnum Áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi, lífríki og ræktun; hvað hefur gerst og hvað getur gerst:
13:00 Vatnavistkerfi í hlýnandi loftslagi — Jón S. Ólafsson, Gísli M. Gíslason, ofl..
13:20 Eru breytingar á stofnstærðum bleikju og urriða af völdum loftslagsbreytinga — Guðni Guðbergsson
13:40 Sjóbleikja á vatnasviði Hvítár í Borgarfirði – Stofnstærð og göngur — Ingi Rúnar og Sigurður Már
14:00 Nýjar fisktegundir í ferskvatnsfánu Íslands — Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson
Hér má svo lesa nánar um þingið
Ég hef hinsvegar aldrei skilið afhverju ferskvatnsfiskar eru með landbúnaði í flokkunarfræði stofnana. Hefði haldið að ferskvatnsfiskar ættu meira sameiginlegt með frændum sínum í sjó en trjám og rollum....! En sú vitleysa á sér langa sögu sem smátt og smátt er undið ofan af.
Feb 28, 2013
Feb 27, 2013
Tökuvarar #1
Já, auðvitað panta ég mér einn svona og segi svo fréttir af reynslunni....
Feb 23, 2013
Af vetrarsumrum og veiðum
Fín veðurspá fyrir mánudaginn, hiti um allt land yfir frostmarki og víða við ströndina um 10°C. Vafalaust langar marga að fara til veiða, sumstaðar leyfa bændur slíkt og hefur maður heyrt fréttir af fínum skotum hér og hvar, bæði í urriða og bleikju. Það fylgir yfirleitt sögunni að hluti fiskjarins hafi verið vel haldinn en annar hluti grindhoraður. Væntanlega er þá annarsvegar um að ræða geldfisk, sem notar allt æti til vaxtar og hinsvegar um að ræða hrygningarfisk sem notar stærstan hluta ætisins til þroskunar á kynkirtlum (svil og hrogn). Ef reynt er að fá upp...
Feb 21, 2013
Magafylli laxa og Vorflugupúpur
Aldrei hafa mér þótt myndir af fiski á aðgerðaborði vera smekklegar, en set þó eina slika inn. Fyrir því eru sérstakar ástæður, því fiskurinn reyndist einstakur og ýmislegt kom á óvart við aðgerðina...
Þannig er að seinni hlutinn af júli er frábær tími í bleikjunni hér í firðinum - þar sem formúlan er gott veður, fallandi vatn, nýgenginn bleikja, uppstrím fimman í hendi og Pheasant Tail á taumnum.
Einfaldlega ávísun á hamingju. Þótt ég sé ekkert sérstaklega fiskinn rek ég stundum í fisk og jafnvel hirði ég einn til að hafa með heim á grillið - eða tvo.

Feb 18, 2013
Vetrarstarf veiðimanna - Bleikjan....
Feb 14, 2013
Ránfiskur fær nýja merkingu..
Ránfiskur fær nýja merkingu þegar maður skoðar þessar Leirgeddur veiða sér dúfur til matar...
Leirgeddur eða Catfish er ferskvatnsfiskur sem hefur náttúrulega útbreiðslu um allan heim. Nokkuð vinsæll í eldi enda ekki kröfuharður á umhverfi sitt. Stundum uppnefndur drullupollafiskur og er bragðið víst eftir þvi - sel það þó ekki dýrara...
Getur orðið hrikalega stór og víða vinsæll í sportveiði. Nokkra þeirra stærstu má sjá hér.

Feb 6, 2013
Laxadeilan mikla?
Fiskistofa hefur tekið saman tölur um lax sem meðafla á flotvörpuveiðum árin 2010-2012
Þar kemur fram að lax er stundum meðafli en magnið er tiltölulega lítið (0-6 laxar/tonnafla) og afar breytilegt á milli ára. Miðað við 3 laxa á hver veidd þúsund tonn og veiðina í flotvörpu síðustu 20 árin, hefur fjöldi laxa verið 1.000-3.000. og miðað við 6 fiska í tonninu þá gæti heildarmagn á laxi sem kemur í flottroll á ári farið í allt að 6.000 fiskar.
Það munar nú um minna... .
Athygli vekur hver uppruni laxins er - en hann virðist að mestu leyti vera norskur og írskur.
Svavar Hávarðsson skrifaði fína úttekt á þessu í fréttablaðið í den..

Feb 5, 2013
MS-inngangur
umþaðbileinhvernveginnsvona gæti inngangurinn í ritgerðinni minni litið út..
Lax- og silungur hefur verið nytjaður hér á landi frá landnámi, fyrst sem matarkista en síðustu áratugi sem stangveiðisport. Óhætt er að flokka þessa fiskistofna sem verulega verðmæta náttúruauðlind enda voru bein, óbein og afleidd áhrif stangveiða á laxi og silungi á þjóðarbúið metin árið 2004 á allt að 9 milljarða (Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, 2004) og aftur árið 2009 á 15 milljarða (Sigurbergur Steinsson, 2010).

Feb 4, 2013
Ólafsfjarðará
Í tilefni þess að Raggi Hólm var með kynningu á Ólafsfjarðará og að SVAK opnaði á sölu leyfa í ánna, tók ég saman smá tölfræði um veiðina í Óló...
Það er svosem fátt sem kemur mér á óvart í þeirri samantekt. Besta veiðin er frá opnun og fram í miðjan ágúst - og reyndar mesta sóknin.
Veiðin í ánni hefur heldur verið á niðurleið síðustu árin, þó kom athyglisverður kippur í veiðina í september 2011. Reyndar má segja að septemberdagarnir séu vanmetnir í ánni - nánast ekkert selst af þeim, þó eru þeir hræódýrir og yfirleitt gefa þessir fáu dagar sem þó eru nýttir nokkra veiði. En tölfræðina má sjá hérneðar..

Subscribe to:
Posts (Atom)