Mar 20, 2013

Efnahagsleg áhrif stangveiða



Ársfundur Veiðimálastofnunar er í dag.  Í ársskýrslunni metur Sigurður forstjóri veltu stangveiða á 20 milljarða, þar af renni til veiðiréttarhafa á annan milljarð.  Þetta hefur mér vitanlega ekki verið reiknað út síðan 2004 - tölur forstjórans eru því sennilega framreikningur miðað við verðlagsbreytingar.  Gríðarmargt hefur breytzt síðan 2004 - mikil aukning hefur verið í silungssókn, innlendinga og útlendinga og verð veiðileyfa hefur hækkað langt umfram verðlagsþróun.  Kæmi mér ekki á óvart þótt virðisaukningin hefði verið langt umfram verðlagsþróun.  Það er full ástæða til að taka svona skýrslu saman aftur.

Sigurður segir einnig:  "Nýting veiðihlunninda er því  ein af stærstu búgreinum landsins og afar mikilvæg  fyrir búsetu víða í sveitum landsins" ..

Mar 18, 2013

Veiðitölur fyrir nerði...gagnvirk grafík

Síðustu árin hefur rafræn veiðibók verið í þróun hjá okkur Ingvari Karli, í samstarfi við SVAK, Flúðir og veiðifélög Hörgár og Svarfaðardalsár.   Ég held verkefnið hafi gengið alveg ágætlega og flestir séu nokkuð sáttir.  Nú er komið að því að okkur langar að bjóða uppá gagnvirka grafíska framsetningu gagnanna - hér neðar má sjá eitt dæmi um hvernig slíkt gæti litið út.  Það væri gaman að frétta af því hvernig fólki gengur að fikta í þessu - og/eða fá hugmyndir um fleiri fídusa sem menn vilja sjá.
Endilega sendið mér línu eða setjið skilaboð hér fyrir neðan.

Mar 14, 2013

Laxeldi í sjó #3

Ég hef heyrt fiskeldismenn segja að lax sleppi ekki úr kvíum:)
Samt sluppu alltað 700.000 laxar þegar óveðrið Berit gekk yfir Noreg haustið 2011 (sjá hér).

Og hvað með það þótt lax sleppi úr kvíum?

Eldisfiskur eru erfðafræðilega frábrugðnir þeim villta.
Annar landfræðilegur uppruni, minni erfðabreytileiki, óbeint eða beint val og genaflökt.
Eldisfiskur og villtur fiskur geta samt átt afkvæmi saman!
1/3 laxfiska sem ganga upp í ár í Noregi er eldisfiskur.    Sumstaðar er hlutfallið 80%.
Villtir stofnar útdauðir í 27% áa í heiminum.  Í útrýmingarhættu í mörgum öðrum ám.

Villtir stofnar á Íslandi standa þokkalega - viljum við sjá sömu þróun á Íslandi?

Mar 13, 2013

Laxeldi í sjó #2

Það er sorglegt að horfa uppá hversu gagnrýnilausa umfjöllun hugmyndir um laxeldi fá í íslenskum fjölmiðlum.  Kranablaðamaðurinn Kristján Már Unnarsson fer þar fremstur í flokki - þessi grímulausa áróðursklippa er gott dæmi um afar lélega fréttamennsku.   Þar segir fiskeldismógull að reglur um fiskeldi á Íslandi séu fráhrindandi og kvartar:
"þeir sem skrifuðu þessar reglur hafa alla vega ekki spurt okkur í Noregi hvernig ætti að gera það.."
Já - oki... - skoðum aðeins hvaða reglur gilda á Íslandi.  Og svo má skoða leyfið hans hér - sem er hérumbil skilmálalaust...

Mar 12, 2013

Laxeldi í sjó #1

Fróðleg umfjöllun um áhrifum sjókvíeldis á villta stofna og feluleik hagsmunaaðila



Mar 1, 2013

Glerá

Sendi inn 4 umsóknir í Fiskiræktarsjóð - ein þeirrra var vegna fiskiræktar í Glerá.  Það á sér forsögu;   Í  lok árs 2011, óskaði SVAK eftir viðræðum við Akureyrarbæ vegna Glerár. Hugmyndin var að SVAK tæki við umsjá árinnar og ræktaði upp í henni fiskistofn - með einum eða öðrum hætti.  Vel var tekið í erindið en ekki afgreitt og er enn í bið. Jafnframt var sótt var leyfi Fiskistofu til fiskiræktar í ánni og fengust þau leyfi, þó með fyrirvara um að veiðifélag Glerár staðfesti áætlunina.   Og nú stendur á því - Akureyrarbær og Norðurorka eiga Glerá og þyrftu að stofna veiðifélag sem staðfest gæti fyrirkomulagið.

Feb 28, 2013

Vísindaþing landbúnaðarins 2013

Vísindaþing landbúnaðarins, sem áður hét Fræðaþing landbúnaðarins, verður haldið þann 6. mars nk.  Jafnan eru nokkrir áhugaverðir fyrirlestrar þar um ferskvatnsfiska.  Nú verða þar nokkrir undir liðnum Áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi, lífríki og ræktun; hvað hefur gerst og hvað getur gerst

13:00    Vatnavistkerfi í hlýnandi loftslagi — Jón S. Ólafsson,  Gísli M. Gíslason,  ofl..
13:20    Eru breytingar á stofnstærðum bleikju og urriða af völdum loftslagsbreytinga — Guðni Guðbergsson
13:40    Sjóbleikja á vatnasviði Hvítár í Borgarfirði – Stofnstærð og göngur — Ingi Rúnar og Sigurður Már
14:00    Nýjar fisktegundir í ferskvatnsfánu Íslands — Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson
Hér má svo lesa nánar um þingið   

Ég hef hinsvegar aldrei skilið afhverju ferskvatnsfiskar eru með landbúnaði í flokkunarfræði stofnana. Hefði haldið að ferskvatnsfiskar ættu meira sameiginlegt með frændum sínum í sjó en trjám og rollum....!   En sú vitleysa á sér langa sögu sem smátt og smátt er undið ofan af.

Feb 27, 2013

Tökuvarar #1

Hún er eilíf leitin að tökuvaranum eina og sanna.  Marga hefur maður prófað með misjöfnum árangri. Sumir tolla ekki nógu vel á sínum stað, aðrir sjást ekki nógu vel, einhverjir eru of þungir í kastinu og aðrir sökkva.  Rakst á einn enn  - ættaðan frá Nýja Sjálandi.  Úr Nýsjálenzkri ull, en ull er svosem ekki nýjung, heldur er það aðferðin og græjan sem setur hann á sinn stað sem er nýjungin:  NEW ZEALAND Strike Indicator Tool 
Já, auðvitað panta ég mér einn svona og segi svo fréttir af reynslunni....

Feb 23, 2013

Af vetrarsumrum og veiðum

Fín veðurspá fyrir mánudaginn, hiti um allt land yfir frostmarki og víða við ströndina um 10°C.  Vafalaust langar marga að fara til veiða, sumstaðar leyfa bændur slíkt og hefur maður heyrt fréttir af fínum skotum hér og hvar, bæði í urriða og bleikju. Það fylgir yfirleitt sögunni að hluti fiskjarins hafi verið vel haldinn en annar hluti grindhoraður.  Væntanlega er þá annarsvegar um að ræða geldfisk, sem notar allt æti til vaxtar og hinsvegar um að ræða hrygningarfisk sem notar stærstan hluta ætisins til þroskunar á kynkirtlum (svil og hrogn).  Ef reynt er að fá upp...

Feb 21, 2013

Magafylli laxa og Vorflugupúpur

Aldrei hafa mér þótt myndir af fiski á aðgerðaborði vera smekklegar, en set þó eina slika inn.   Fyrir því eru sérstakar ástæður,  því fiskurinn reyndist einstakur og ýmislegt kom á óvart við aðgerðina...
Þannig er að seinni hlutinn af júli er frábær tími í bleikjunni hér í firðinum - þar sem formúlan er gott veður, fallandi vatn, nýgenginn bleikja, uppstrím fimman í hendi og Pheasant Tail á taumnum.
Einfaldlega ávísun á hamingju.  Þótt ég sé ekkert sérstaklega fiskinn rek ég stundum í fisk og jafnvel hirði ég einn til að hafa með heim á grillið - eða tvo.