Í heilt ár hef ég hlustað á öfgaveiðisögur félaganna af Jurassic Lake. Vænar bleikjur í massavís, ofurtökuglaðar, kryddað með risaurriðum. Hljómar frekar draumkennt - en þegar ég fór að sjá myndir af veiðinni fór ég að leggja við hlustir. Renndi svo austur í liðinni viku og kíkkaði á málið. Jurrassic Lake er Skjálftavatn í Kelduhverfi sem Litla rennur úr. Vatnið er á gosbeltinu á miðjum atlantshafshryggnum, sama beltið og t.d. Þingvallavatn liggur á. Vatnið myndaðist í sjálftahrinu á 8. áratugnum við landsig, en var uppgræðslusandur landgræðslunnar.
Jun 28, 2012
Jun 27, 2012
2012_6_Yfir kaldan eyðisand...
Jun 25, 2012
2012_05_Fnjóská
Kíkkaði í Fnjóská í dag, áin var í c.a. 60m3, sumir staðir ekki spennandi, en aðrir þeim mun laglegri.
Fór á svæði 4 fyrir hádegi, byrjaði í Lygnu, heldur mikið vatn þar, svo á Lækjarbreiðu sem var mjög lagleg í þessu vatni - klárlega gæti bleikja lagst þar, amk biðu þar tveir bleikjuhængar sem nenntu ekki til sjávar þetta árið og létu glépjast af bleikum nobbler. Fór svo í Systrahvamm, veiddi bara fyrir ofan brú. Mér leiðist sá staður -stundum er kaffið gott í sjoppunni:). Endaði svo í Nesbugðunni, sem lúkkaði alveg frábærlega niður undir girðingu, seiðin í tjörninni lágu alveg við útfallið - sá samt ekki hvort þau voru að smolta.

Jun 19, 2012
Vatnsmagn og veiðihorfur í Fnjóská
Jun 15, 2012
Fnjóská opnuð
Hörgá svæði 1
Við mættum á svæðið um klukkustund eftir háflóð og veiddum útfallið í c.a. 3 tíma. Kannski vorum við ekki á réttum tíma í fallinu, kannski var bleikjan ekki svæðinu, kannski vorum við bara klaufar. Kannski hefði ég átt að horfa á mynbandið hans Þórodds...
Jun 14, 2012
Niður með stíflurnar...
Á sama tíma og Íslendingar vilja enn byggja stíflur sem hafa nokkuð óumdeilanleg áhrif á vistkerfið, eru aðrar þjóðir að rífa stíflur - til að endurheimta horfin vistkerfi......
Hérlendis er umræðan um endurheimt viskerfa með afstíflum að fæðast. Nefndar hafa verið Skeiðsfossstíflan í Fljótaá, Sogsstíflur, Elliðavatnsstíflan o.fl.
Í vefútgáfu TheNewYorkTimes má lesa um stíflu í Maine í BNA sem fjarlægð var til að endurheimta hrygningarslóðir. Í vefútgáfu San Francisco Cronicle má svo lesa um fleiri slíkar í Kalíforníu í BNA. (uppfært 9.4.13).
Hér er svo kort yfir stíflur sem hafa verið fjarlægðar í BNA síðustu áratugin (uppfært 10.03.14).
Merkilegt er að flestir fiskifræðingar og vistfræðingar - nema kannski forstjóri Vveiðimálastofnunar,ef ég skildi hann rétt - eru mótfallnir Þjórsárstíflum.... meira að segja þessi hér sem hefur nú ekki verið þekktur sem friðunar- eða verndarsinni...!
Hér er svo kort yfir stíflur sem hafa verið fjarlægðar í BNA síðustu áratugin (uppfært 10.03.14).
Jun 13, 2012
Flóð eða fjara?
Á þessum árstíma er víða ágæt bleikjuveiði á ósasvæðum. Bleikjan fylgir gjarnan fallinu, mokar í sig marfló ofl. góðgæti. Ekki virðist bleikjan haga sér eins á öllum ósasvæðum, sumsstaðar er best að veiða hana á liggjandanum, annarsstaðar nokkru eftir háflóð og einhversstaðar gefur hún sig á innfallinu. Fallapólitík bleikjunnar verða menn bara að læra af reynslunni. En þegar hún hefur verið kortlögð er ágætt að hafa góða flóðatöflu til að fletta í.
Nokkrar fínar flóðatöflur eru á vefnum:
Akureyri, Iceland, þessi og þessi og þessi er líka með fróðleik um hvernig túnglið hefur áhrif á töku fiska.
Hér er svo fín síða um sjávarföll í Eyjafirði. Vistey.is
Myndbandið er svo eina lagið sem ég man til að hafi verið samið um....flóðatöflur?
Jun 6, 2012
Stangveiði og stórlaxar...
Í gær opnuðu tvær laxveiðiár, fjölmiðlar voru duglegir að flytja fréttir af því. Það er vel að fjölmiðlar flytja fréttir af stangveiði. Miður er hinsvegar að þeir fjalla nánast eingöngu um laxveiði. Það sýnir í hnotskurn hvað gildismat fjölmiðlafólks er skakkt og tilfinning þeirra fyrir lífinu í landinu er slöpp. Á þessu eru þó undantekningar, því silungsveiðin fær ágæta umfjöllun á veiðivefjum grasrótarinnar.
Stangardagar í laxveiði eru 40.000, rúmur þriðjungur fer til útlendinga, 15% er óselt, 20.000 dagar fara þá til Íslendinga, flestir þeirra fara í tvo eða fleiri tveggja daga túra og eru tveir um stöng. Það þýðir að um 10.000 Íslendingar kaupa sér laxveiðileyfi. Í könnunum kemur hinsvegar fram að um 60-70.000 manns veiða árlega - það þýðir að 50.000 þeirra sem veiða, fara ekki í laxveiði.
Samt fjalla fjölmiðlar um stangveiðar einsog þær snúist bara um laxveiði. Það er svona svipað og umfjöllum um sjávarútveg einskorðist við fréttir af humarbátum.......

Jun 5, 2012
Veiðiskólinn 2012
Veiðiskóli SVAK hefst nú um helgina. Þetta er 4. árið sem hann er starfræktur og er umfangið nú meira en nokkru sinni.
Í sumar verða 5 námskeið í boði, sem verða endurtekin nokkrum sinnum eftir þörfum og er þegar búið að teikna upp 25 skipti.
7 kennarar verða við skólann í sumar, allt þrautreyndir veiðimenn.
Nú þegar er búið að skipuleggja:
7 kennarar verða við skólann í sumar, allt þrautreyndir veiðimenn.
Nú þegar er búið að skipuleggja:
-Unglinganámskeið
-Veiðinámskeið fyrir byrjendu
-Flugukast fyrir byrjendur einhenda
-Tvíhendunámskeið
-Lærðu á ánna - boðið uppá veiði í ánum í firðinum með vönum veiðimönnum
Á hverju veiðinámskeiði er aðeins pláss fyrir 4
Fjöldi á kastnámskeiðin er ekki takmarkaður
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 696-5464
Námskeið eru haldin með með fyrirvara um næga þátttöku og skaplegt veður
Subscribe to:
Posts (Atom)